Færsluflokkur: Bloggar
13 maí 2008. Ég stefni að ákveðnu takmarki. Ég er búin að segjast ætla að fara æfa kringlukast og fara í öldunginn. Fyrsta æfing var í dag og fór ég niður á Kópavogsvöll og hitaði mig upp og gerði teygjur. Svo fékk ég að kasta kringlu. Frábær tilfinning. Ég fór heim til mín með sælubros á vör. Næsta æfing er á fimmtudaginn. Takmarkið er að kasta allavega 30 metra í sumar. Ég vil hvetja alla þarna úti sem eru búnir að ganga lengi með í maganum að fara að æfa íþróttir að drífa sig, það er ekki eftir neinu að bíða. Ég beið of lengi en ég er samt mætt.
Ég hef ekki fallið fyrir sígaréttuþrælahaldaranum og ætla mér að vera reyklaus. Samt hafa komið erfiðir dagar en þeir líða hjá.
Bloggar | 13.5.2008 | 18:47 (breytt 16.5.2008 kl. 09:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég verð að viðurkenna það að það er helv.... erfitt að hætta að reykja. Ég fæ oft langanir en ég veit að það mun hverfa með tímanum. Núna er komin 2½ mánuður síðan ég hætti. Þessar langanir standa stutt en koma sterkar inn. Ég ætla að standa mig og ætla ekki að falla fyrir þessum þrælahaldara.
Af naglaáti er það að segja að eftir að ég fór að setja á mig BITE NO MORE þá er ég farin að sjá árangur. Gleðilegt. Semsagt þetta virkar.
Núna stefni ég á að fara á íþróttavöllinn og fara að æfa kringlukast og ætla að keppa í öldungnum.
Ég hef samt verið að stússast meira. Ég skellti mér í fjarnám í Ármúlaskóla síðastliðið haust í Heilbrigðisritarann. Ég náði öllum prófum og núna á ég bara eitt fag eftir sem ég stefni á að taka í haust en það er latínan. Ég er stolt af sjálfri mér þótt ég sé að nálgast fimmtugt.
Bloggar | 8.5.2008 | 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Núna hef ég ekki nagað neglurnar á mér í 4 daga. Þetta undralakk Bite no more er svo sannarlega að virka. Puttarnir á mér hafa slæðst upp í mig nokkrum sinnum og þá fæ ég þetta ógeðslega bragð upp í mig. Þetta virkar þannig þetta lakk, það kemur húð á neglurnar á mér og þær eru ekki mattar heldur glærar. Miklu flottara. Svo á ég að taka þetta af mér í dag á 5 degi og lakka aftur yfir og gera það í 4 daga. Ég held að ég eigi að klára alveg út glasinu, þá ætti einhver árangur að sjást.
Svo er það með reykingarnar að það gengur bara rosalega vel. Þetta virðist smita út frá sér og hefur tvennt bæst í hópinn með mér. Þau eru fyrrum vinnufélagar og fóru á Champix. Gengur rosalega vel hjá þeim. Ég er ánægð að ég skuli hafa áhrif á aðra. Mér líður bara svo miklu betur og fólk sér það. Kannski er einhver þarna úti sem þekkir mig ekki neitt en hefur lesið bloggfærslurnar mínar og vill hætta með hjálp Champix, það væri bara frábært. Bara velkomin í hópinn.
Bloggar | 29.4.2008 | 10:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég er nú svo furðuleg að ég hef nagað neglurnar mínar frá því ég man eftir mér. Á fullorðinsárum mínum tókst mér að hætta í einhvern tima en fell aftur og aftur. Maðurinn minn sagði við mig að hann skildi ekki fólk sem væri að éta sjálft sig. Ég hef enga skýringu á þessu fyrirbæri. Það var reyndar alltaf sagt að þetta væri taugaveiklun. Einn bróðir minn bauð mér að naga neglurnar á tánum á sér þegar ég var lítil, en á því hafði ég ekki áhuga.
Núna ætla ég að gera tilraun á sjálfri mér. Ég fór í Hagkaup Smárlind og keypti mér Bite no more frá Kiss sem heildsalan ESSEI flytur inn. Það er ógeðslegt bragð af þessu lakki. Í gamla daga prófaði ég svipað efni en vont bragð stoppaði mig sko ekki þá daga. Áhvað að prófa. Kom svo heim og hringdi í heildsöluna og spurði hvort hann hefði heyrt einhverjar reynslusögur. Ó jú, það hafði hann, hann á 3 dætur og eiginkonu. Ein dóttirinn nagar neglurnar á sér og þetta reyndist henni vel tl að hætta. Ég sagði við hann að ég ætlaði að prófa og myndi svo blogga um árangur minn.
Ég lakkaði neglurnar seinnipartinn í gær( eða það sem eftir er að þeim). Var að passa að setja þær ekki upp í mig. Æj, gleymdi mér andartak nokkrum sinnum og setti puttana upp í mig(þetta er svo mikill vani). Þvílíkt ógeðslegt bragð. Oj barasta. Ég á víst að setja lakkið á mig í 4 daga og taka það svo af mér, lakka svo aftur og endurtaka. Eftir 10 daga ætti að sjást árangur. Jæja núna ætla ég að fara að lakka mig í annað sinn.
Bloggar | 26.4.2008 | 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég var að enda við að heyra lagið Ég er komin heim. Bubbi Morthens og Björn Jörundur syngja saman lagið sem Óðinn Valdimarsson söng fyrst inn á plötu árið 1960. Lagið er erlent en textinn er eftir Jón Sigurðsson. . Þetta er vægast sagt hroðalegt. Mér finnst þetta hrein hörmung. Laginu er hreint og beint nauðgað. En þetta er bara mín skoðun, kannski finnst einverjum þetta fott. Þeir fara illa með lagið og finnst mér það synd.
Sigurður Guðmundsson (Siggi í Hjálmum) syngur þetta sama lag frábærlega og er virkilega vel gert hjá honum. Til hamingju Sigurður.
Bloggar | 25.4.2008 | 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mikið hefur verið rætt um meint myndband Eurobandsins. Mér finnst það stórskemmtilegt. Góður húmor. Hver kannast ekki við það að hafa verið að æfa sig að syngja með kertastjaka eða hárbursta á sínum yngri árum og láta sig dreyma. Þannig sé ég þetta fyrir mér.
Ég óska Friðrik og Regínu góðs gengis í Eurovision 2008.
Bloggar | 23.4.2008 | 12:18 (breytt kl. 12:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja gott fólk, nú eru liðnir 2 mánuðir frá því ég hætti að reykja. Hætt á Champix. Ég vissi það að þegar ég hætti færu kílóin að koma á mig og það stenst. Svo ég gerði áætlun. Ég fór strax í leikfimi 2 í viku og svo hleyp og labba sama hringinn heiman frá mér 2 í viku. Nú svo er ég byrjuð á að labba 1 x í viku klukkutíma langan labbitúr. Samt koma kílóin á mig. Nú ég hugsaði nú lengra, ég verð að breyta að einhverju leiti matarræði mínu. Talaði við fagmanneskju og hún gaf mér ráð og ég er búin að fara í Heilsuhúsið og kaupa inn sem ég nota í grunn hjá mér. Brauðin í Grímsbæjarbakaríi eru æði og í miklu uppáhaldi hjá mér. Keypti mér líka spelt kringlur, ummm unun.
Svo nú er allt í bullandi keyrslu og hlakka ég til eftir ca. 1 mánuð að þá ætti ég að sjá einhvern árangur. Mér líður bara svo miklu betur, gott að vera laus við vondu lyktina þótt ég hafi bætt einhverjum kílóum á mig þá hverfa þau, ef ég held áfram að hreyfa mig.
Bloggar | 22.4.2008 | 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað er eiginlega í gangi. Þetta er fáránlegt að lögreglan sé að skipta sér að . Þetta minnir mann á frétt frá Kína. Ég stend með atvinnubílstjórum og er alfarið á móti þessum gríðalegum hækkunum á eldsneyti.
Orðrómur um aðgerðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 3.4.2008 | 12:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þetta er bara ekkert mál að hætta að reykja. Núna er 25 dagurinn reyklaus. Ég er byrjuð í gönguhóp og svo er ég í leikfimi 2 sinnum í viku og mér finnst það skemmtilegt. Það er langt síðan ég hef upplifað þessa tilfinningu að finnast gaman í lyftingatækjum og hvað þá að vera á hjóli eða göngubretti. Núna er ég svo ákveðin í að ná mér í gott form að ég er hálf hrædd við sjálfa mig.
Mér líður rosalega vel og ég er stolt af sjálfri mér. Til hamingju Íris.
Bloggar | 14.3.2008 | 11:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ef einhver fer inn á bloggið mitt, þá vil ég benda á áhugaverðann pistil sem ég var að lesa.
Slóðin er: http://www.hondin.is/content/blogcategory/15/50/ Fyrirsögnin er: Ég er nagli og hlusta ekki á neitt væl um þunglyndi.
Þar sem margir vilja ekki viðurkenna að neitt sé að hjá þeim, þá er þetta virkilega eitthvað sem vekur mann til umhugsunar.
Bloggar | 10.3.2008 | 13:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Tónlistarspilari
Tenglar
Mínir tenglar
- Hláturinn lengir lífið!! Frábært viðtal, eða þannig sko!!
Línudans
- Línudans Síða með íslenskum línudönsurum.
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar