Jibbý -14 dagar reyklaus!!!!

Þetta er allt annað líf.  Ég vakna hressari og það er komið líf í hárið á mér, það var nefnilega hálf dautt og tengi ég það reykingunum.

Ég byrjaði í leikfimi 28 feb. Því ég á von á að fitna alveg helling.  Ég er núna búin að mæta í tvo tíma og þvílíkar harðsperrur.   Ég átti nú alveg von á því.  Manneskja sem hefur ekki hreyft á sér skrokkinn í mörg ár. 

En,sem sagt er að komast í drullu góð mál með sjálfa mig. Klappa mér góðlátlega á axlirnar fyrir dugnaðinn.

 

Ætla svo að vakna reyklaus á morgun.( Núna hljóma ég eins og AA- kona)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

Þú getur aldeilis klappað þér á axlirnar fyrir dugnaðinn. Til lukku með þennan árangur. Ef þú getur hætt að reykja þá getur þú líka grennt þig ef þú fitnar eitthvað, ég er sannfærð um það. Þú getur bara verið stolt.

Sigrún Óskars, 4.3.2008 kl. 22:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband